Verslun Guðsteins, Leanbody, Plan Studio o.fl.
Ármúli 11
108 Reykjavík

Við Ármúla 11 stendur fallegt steinhús, byggt árið 1967 utan um rekstur iðnaðarfyrirtækisins Þórs hf. sem sinnti innflutningi og sölu á vélum og tækjum til landbúnaðar. Húsið er teiknað af arkitektunum Ólafi Sigurðssyni og Hákoni Hertervig. Eftir að Þór flutti starfsemi sína annað hefur húsið þjónað fjölbreyttum fyrirtækjum sem verslunar-, skrifstofu- og geymsluhúsnæði. Húsið er einstaklega vel staðsett í Ármúlanum, nálægt helstu umferðaræðum, almenningssamgöngum og þjónustu. Við húsið eru næg bílastæði, bæði fyrir framan verslanirnar og á baklóð.

Meðal leigutaka er ein af elstu verslunum landsins, Verslun Guðsteins, og við hlið hennar er verslunin Leanbody. Á efstu hæð er arkitektastofan Plan Studio og í bakhúsinu eru fjölmörg fyrirtæki með lager.

Til leigu í húsinu:

  • Skrifstofurými á 2. hæð: 126,8 m²

Hafið samband á netfangið bergey@bergey.is ef þið hafið áhuga á að skoða.

Fermetrar
1851 fm²
Byggingarár
1967
Húsið er staðsett nálægt helstu umferðaræðum og almenningssamgöngum.