Herkastalinn
Kirkjustræti 2
101 Reykjavík

Kirkjustræti 2, betur þekkt sem Herkastalinn, er meðal merkustu og sögufrægustu bygginga Reykjavíkur og hýsti höfuðstöðvar Hjálpræðishersins í rúma öld frá því húsið var reist. Húsið var byggt árið 1916 eftir teikningum Einars Erlendssonar arkitekts og er talið fyrsta stórvirki hans í steinsteypu. Upphaflega var húsið tvílyft, en árið 1929 var tveimur hæðum bætt við. Húsið er 1.405 fermetrar að stærð og skiptist í kjallara, þrjár hæðir og rishæð. Það er friðað að utan vegna menningarlegs og sögulegs gildis.

Bergey festi kaup á húsinu árið 2025 en leigutaki hússins er Old Town Guesthouse.

Fermetrar
1405 fm²
Byggingarár
1916
Kirkjustræti 2 - Bergey fasteignafélag