Torg Apartments
Týsgata 8
101 Reykjavík
101 Reykjavík
Við Óðinstorg, eitt af fallegri torgum Reykjavíkur, stendur Týsgata 8 þar sem Torg Apartments og barinn Bodega eru til húsa. Húsið var reist árið 1934 eftir teikningum Einars Erlendssonar. Sama ár opnaði Sigurður Gíslason þar Ávaxtabúðina, sem seldi nýlenduvörur, ávexti og tóbak á horninu í nær tvo áratugi. Árið 1953 tók Náttúrulækningabúðin við, ein fyrsta heilsubúð landsins, og starfaði þar í rúm tuttugu ár. Síðar voru í húsinu meðal annars bókaforlag, gallerí, tískuverslun og kaffihús.
Í húsinu eru sex hótelíbúðir og á jarðhæðinni er hinn vinsæli bar Bodega.
Fermetrar
495 fm²
Byggingarár
1934

















